![]() |
|||||||||||||||||||||||||
|
Erum á Akureyri
|
RafmagnsreiðhjólTæknilegar upplýsingarRafdrifnu El-Bike reiðhjólin eru framleidd í Kína af Bresku fyrirtæki sem annast vöruþróun og gæðaeftirlit. Hjólin eru eins og venjuleg reiðhjól með 6 gíra Shimano TX-50 skiptingu en eru auk þess búin 250 Watta rafmótor sem knýr afturhjólið þegar hjólið er stigið. Undir sætinu er 24 V/8 Ah Ni-MH rafhlaða sem hægt er að taka úr með tveimur handtökum og hafa með sér inn til hleðslu eða geymslu. Hjólinu fylgir hleðslutæki sem tengt er við heimilisrafmagn og hægt er að hlaða rafhlöðuna bæði í hjólinu eða utan þess. Rafhlaðan endist til u.þ.b. 25 km aksturs á jafnsléttu. Það getur tekið allt að 4 stundir að fullhlaða tóma rafhlöðu og hægt er að endurhlaða hana um eða yfir 350 skipti en þá má reikna með að endurnýja þurfi hana. Hjólin eru ekki skráningar, né tryggingarskyld og engin réttindin þarf til að nota þau. Þau eru öll um 22 - 23 kg að þyngd og bera um 100 kg. Bilanatíðni er lág og allir varahlutir fáanlegir.
Hafið samband við Björgvin í GSM síma 897-3258
|
||||||||||||||||||||||||